
Okkur systrunum hefur alltaf þótt gaman að fallegum hlutum og höfum notið þess að vera umkringdar fagurkerum sem hafa skapað notaleg, falleg og afslöppuð heimili. Á sama tíma finnum við fyrir hraðanum sem stöðugt bankar upp á og þörfin fyrir að hafa notalegt í kringum sig án mikillar fyrirhafnar verður ríkari.

Við þessar vangaveltur spratt upp sú hugmynd að hanna rúmföt sem væru falleg og notaleg – án mikillar fyrirhafnar. Partur af sjarmanum er í raun ófullkomleikinn – óumbúið rúm, opin bók og tebolli á náttborðinu. Ef maður vildi „búa um“ þyrfti í raun ekki að gera meira en að slétta úr sænginni. Engin þörf á skrautpúðum, rúmteppi eða öðru heldur einfaldleikinn í fyrirrúmi þar sem krumpur eru fallegar og andrúmsloftið afslappað.





Þegar við systur urðum svo óléttar um svipað leyti fannst okkur liggja beint við að hanna rúmföt fyrir litlu krílin í sama stíl. Barnarúmin eru inni í svefnherbergi foreldra fyrst um sinn og því þótti okkur þetta mynda fallega heildarmynd.







Þegar hugmyndin kom upp datt okkur strax í hug að heyra í vinahjónum okkar í Kaupmannahöfn. Við sendum þeim skilaboð snemma á laugardagsmorgni til að spyrjast fyrir um framleiðsluaðila, enda hafa þau áralanga reynslu af framleiðslu í Portúgal og góðar tengingar innan Evrópu. Við fengum strax símtal til baka: „Eruð þið skyggnar? Við erum akkúrat í Portúgal á leiðinni að hitta rúmfataframleiðanda!“. Við ákváðum að slá höndum saman og láta verða af því að framleiða þessi rúmföt sem við sáum svo skýrt fyrir okkur.








Við erum virkilega ánægð með útkomuna og höfum notað rúmfötin fyrir okkur og krílin frá fyrsta degi. Suma daga er búið um en flesta daga er sængin krumpuð, dregin fram í sófa eða vafin utan um þá sem okkur þykir vænst um. Við vonum að rúmfötin reynist þér jafn vel og okkur.